
Jóhanna Einarsdóttir, forstöðumaður Rannsóknarstofu í menntunarfræðum ungra barna við Háskóla Íslands (RannUng), og bæjarstjórar í Garðabæ, Hafnarfirði, Kópavogi, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi undirrituðu þann 25. janúar samstarfssamning um rannsóknarverkefni í leikskólum. Markmið samstarfsins er að auka þekkingu á leikskólastarfi í sveitarfélögunum og stuðla að auknum gæðum í leikskólastarfi. Um er að ræða samning til þriggja ára.
Samstarf starfsmanna Menntavísindasviðs við vettvang er með ýmsu móti. Hér kynnum við dæmi um ólíkt samstarf. Á vaðið ríður Þórður Helgason dósent í íslensku. Þórður hefur verið ötull við að kenna ljóðlist. Hann var beðinn um að segja frá þessu starfi sínu og brást hann vel við því. Þórður kallar pistil sinn Skáldskap í skólastofunum.